<$BlogRSDURL$>

Þetta er fjölskydu spjall rásinn mikla

fimmtudagur, mars 18, 2004

Í dag var góður dagur fyrir Hartmann. Eins og venjulega var hann mættur í skólan klukkan sjö, svo hann geti undirbúið daginn áður en kennarar og nemendur mæta á svæðið. Þá tekur hann upp úr skólatöskunni, yddar blýanta og fer yfir heimanámið einu sinni enn til þess að ganga úr skugga um að þar séu engar villur að finna. Loks sópaði hann gólfið og þreif glugganna, því eins og allir vita, þá er Hartmanni ekki verr við neitt en sóðaskap. Uppúr átta fór bekkjarsystkini Hartmanns að sópast að og hann hélt stuttan fyrirlestur til að minna alla á lexíur dagsins. Allir vita líka að Hartmann hugsar vel um samferðarfólk sitt. Loks fór hann með bæn og bað Drottinn að líta eftir högum þeirra samankomnu og sjá til þess að þeim færi vel námið. Loks dröslaðist dönskukennarinn inn klukkan sjö mínútur yfir átta. Hartmann skráði þetta hjá sér og mun geta þessa slórs í vikulegri skýrslu til skólastjórans og í mánaðarlegu yfirliti til menntamálaráðherra. Loks hófst kennslustundin og var Hartmann nokkuð sáttur því hann þurfti aðeins að leiðrétta kennaran þrisvar sinnum. Í frímínútunum drakk Hartmann svo gulrótarsafa og át dálítið salad.
Næst var smíði og var Hartmann þar mættur. Þar sem hann var beðin um að leysa Björn halta smíðakennara af í páskafríi gafst honum ekki mikill tími til að vinna í sófasettinu sem hann er að smíða fyrir forledra sína, svo mikill tími fór í að aðstiða bekkjarsystkinin við allskonar verkefni. Björn er væntanlegur í næstu viku, svo sófasettið ætti að vera tilbúið fyrir ferminguna, og má þessvegna sjá það þar.
Í löngu frímínútum hljóp Hartmann heim og gæddi sér á spínatsböku með steiktum lauk. Þá hljóp hann aftur í skólann og tók þátt í leikfimi af miklum áhuga og vakti verðskldaða og mikla eftirtekt. Og þar er hann nú. Hvað skyldi gerast næst....? Ekki gott að segja.
|

miðvikudagur, mars 17, 2004

Svo latur er Hartmann að hann er með fleiri manns í vinnu á eigin síðu!!!
| Weblog Commenting by HaloScan.com

This page is powered by Blogger. Isn't yours?